|
RVR Control er þjónustufyrirtæki (þekkingarhús) sem sérhæfir sig í rafmagns- og smáspennulausnum fyrir heimili og fyrirtæki. Hvort sem er í hönnun, framkvæmd (uppsetningu) eða viðhaldi. Hjá fyrirtækinu starfar góður hópur fólks sem býr yfir mikilli þekkingu og reynslu í lausnum fyrir viðskiptavini. Helstu verkþættir eru: Hönnun: t.d. Raflagnahönnun, lýsinga- og ljósahönnun, hönnun hitakerfa, tölvukerfa, loftnets- og gervihnattakerfa, hljóð og myndkerfa, rafdrifnar gardínur, glugga- og hurðaopnanir. Og hverjum þætti sem kemur að heimastjórnunarkerfum. Forritun á hinum ýmsu kerfum og erum við með færustu og reynslumestu menn í KNX (EIB, Instabus) forritun, sem er stjórnkerfi sem getur stjórnað öllu helsta sem kemur að heimilum og fyrirtækjum, s.s. ljósum, hita, gardínum, gluggum o.s.fr. KNX kerfið er upprunalega hannað sem orkusparnaðarkerfi og með réttri forritun er hægt að lækka orkureikninginn Dyrasímalausnir og aðgangsstýringar - hvort sem er að ræða stór eða smá dyrasímakerfi, með eða án myndavélar eða aðgangstýringar. Við veitum rágjöf og sjáum um uppsetningu. Einnig með viðhald á eldri kerfum. Hljóð og myndlausnir - Heildarlausnir fyrir fyrirtæki (fundarsali, verslir) og heimili. Við veitum ráðleggingar og sjáum um viðhald og uppsetningu á mynd og hljóðkerfum, hvort sem er stór eða smá. Erum einnig með lausnir í kringum bíómyndakerfi, ef þú vilt koma DVD myndunum, ljósmyndum, video upptökum og tónlistinni þinni á sameiginlegan stað og geta horft og hlustað á það um húsið, vertu þá í sambandi við okkur. Höfum mjög mikla reynslu af bæði BeoLink (Bang & Olufsen) og Bose hljóð og mynd kerfum. Window Master (náttúruleg loftræsting) - Frábær lausn á loftræstingu, þar sem opnun glugga og hitakerfi er stjórnað með tölvu. Þetta kerfi er bæði orkusparandi og rými nýtist betur (engin þörf á að leggja stokka út um alla bygginguna). Hægt er endurbæta eldri byggingar með WindowMaster (WM) loftræstingu. Nú þegar er kominn reynsla á WM loftræstingu hér á landi t.d. Grandhótel, Smáraturn, Skrifstofubygging Bíldshöfða svo eitthvað sé nefnt. Loftnets- og gervihnattalausnir - Frá upphafi fyrirtækisins 1998 hefur RVR control verið leiðandi fyrirtæki í loftnets- og gervihnattalausnum. Og frá upphafi þjónustað stór og smá loftnetskerfi. Sinnum viðhaldi og endurbótum á eldri kerfum, og hönnun og uppsetningu á nýjum kerfum. Netlausnir - Hvort sem er að ræða stór eða smá netkerfi, þráðlaus eða víruð þá erum við með lausnina. Gluggastýringar - Gluggastýringar eru nauðsynlegur þáttur í stórum húsum í dag og getur RVR Control boðið uppá margar lausnir á því sviði sem henta bæði í nýbyggingar og eldra húsnæði. Gluggastýringarnar eru sniðnar að þörfum hvers og eins. Einnig erum við með mótora sem passa á flestar tegundir glugga, hvort sem þeir séu stórir eða smáir. Þjónusta á Bang & Olufsen - RVR control þjónustar B&O á Íslandi, hvort sem uppsetningar á BeoLink kerfum, ráðgjöf eða viðgerðir á B&O tækjum.
|